Description
Domino Pads Petite Liner Sport eru þunn, með vængi og hönnuð til að fylgja línum líkamans. Þetta tryggir sem besta vörn og þægindi. Domino Pads hafa þrenns konar rakadrægni, létta, miðlungs og mikla. Petite Liner Sport er með létta rakadrægni.
Efsta lag Domino Pads Sport er úr ProCool moisture wicking jersey, efni sem flytur rakann frá líkamanum og rakadræga lagið undir því er úr bambusblöndum. Rakadræga lagið er 18 cm langt og um 6,5 cm að breidd um miðju. Undirlag er örlítið lengra og breiðara.
Undirlag bindanna er úr Windpro flís sem andar en lekur ekki í gegnum.
Domino Pads eru opin í báða enda til að tryggja loftflæði á milli ysta lags og rakadræga lagsins þegar þau eru þurrkuð í þurrkara og þannig styttist þurrktíminn.
Bindin eru handsaumuð í Bandaríkjunum og eru einstaklega rakadræg og þægileg.
Þvottaleiðbeiningar:
Þvoið bindin fyrir notkun.
Skol í köldu vatni fyrir þvott getur komið í veg fyrir að blettir festist.
Þvoið á 40°C eða lægri hita.
Forðist mýkingarefni.
Ekki nota klór.
Þurrkið á lágum hita í þurrkara eða á snúru.
Reviews
There are no reviews yet.