Description
Caya Diaphragm Gel er notað er ásamt Caya hettunni til að koma í veg fyrir getnað. Gelið hindrar sæðisfrumur í að ná til legs með því að loka betur fyrir leghálsinn. Um 4 ml af geli eru settir innan í Caya hettuna áður en henni er komið fyrir.
Virkni hettunnar sem getnaðarvarnar byggir á að nota einnig krem eða gel með henni. Án gelsins er hettan ekki eins örugg. Um 4 ml skammtur af geli er borinn innan á Caya hettuna. Einnig getur verið gott að setja smávegis af geli á kant hettunnar til að auðvelda uppsetningu hennar. Þegar hettan er komin á sinn stað þarf að tryggja að hún hylji leghálsinn alveg og að gelið liggi upp við hann. Þannig er lokað á leghálsinn á tvenna vegu, annars vegar lokar Caya hettan sjálf og hinsvegar lokar Caya Diaphragm gelið fyrir hann.
Ath. Caya Diaphragm gel veitir ekki vörn gegn kynsjúkdómum.
Innihald:
- Vatn
- Mjólkursýra
- Natríumlaktat
- Metýlsellulósi
- Sorbínsýra