Caya Diaphragm Gel – Sæðisdrepandi gel – 60 g

kr.3.990

Caya Diaphragm Gel er sæðisdrepandi gel til notkunar með Caya hettunni.

21 in stock

SKU: 2950119 Categories: , Tags: ,

Description

Caya Diaphragm Gel – sæðisdrepandi gel er notað er ásamt Caya hettunni til að koma í veg fyrir getnað. Gelið hindrar sæðisfrumur í að ná til legs en einnig breytir það pH gildi í kringum leghálsinn og hefur þannig neikvæð áhrif á sæði. Um 4 ml af geli eru settir innan í Caya hettuna áður en henni er komið fyrir. Caya Diaphragm gel er sambærilegt Contragel green sem hefur verið í notkun síðan árið 1972 en pakkningin inniheldur einnig innsetningarhylki til notkunar þegar bæta þarf á gelið í leggöngum.

Virkni hettunnar sem getnaðarvarnar byggir á að nota einnig sæðisdrepandi krem eða gel. Án gelsins er hettan ekki eins örugg. Um 4 ml skammtur af geli er borinn innan á Caya hettuna. Einnig getur verið gott að setja smávegis af geli á kant hettunnar til að auðvelda uppsetningu hennar. Þegar hettan er komin á sinn stað þarf að tryggja að hún hylji leghálsinn alveg og að gelið liggi upp við hann. Þannig er lokað á leghálsinn á tvenna vegu, annars vegar lokar Caya hettan sjálf og hinsvegar lokar Caya Diaphragm sæðisdrepandi gelið fyrir hann. Áhrif gelsins á sýrustig leghálsins veitir einnig vörn gegn getnaði en er ekki eins stór hluti ferlisins.

Ath. Caya Diaphragm gel veitir ekki vörn gegn kynsjúkdómum.

Innihald:

  • Vatn
  • Mjólkursýra
  • Natríumlaktat
  • Metýlsellulósi
  • Sorbínsýra

Reviews

There are no reviews yet.

Be the first to review “Caya Diaphragm Gel – Sæðisdrepandi gel – 60 g”

Your email address will not be published. Required fields are marked *