Caya hettan

kr.9.800

Caya hettan er hormónalaus valkostur fyrir konur sem vilja stjórna sinni getnaðarvörn sjálfar.

Ath. panta þarf Caya Diaphragm gel sér.

7 in stock

SKU: 9224698 Categories: , Tags: , ,

Description

Caya hettan er hormónalaus valkostur fyrir konur sem vilja stjórna sinni getnaðarvörn sjálfar. Hettunni er komið fyrir í gegnum leggöng fyrir samfarir á svipaðan hátt og tíðartappa eða tíðabikar. Hún leggst yfir legháls og kemur í veg fyrir að sæðisfrumur berist upp í leg á meðan á samförum stendur og eftir þær. Eftir samfarir er hettan látin vera á sínum stað í minnst 6 klukkutíma. Caya hettan er notuð með hindrandi geli líkt og Caya Diaphragm Gel.

Hettan hentar flestum konum, “one size fits most”. Hún kemur í einni stærð sem hentar konum sem nota myndu stærð 65-80 mm af eldri gerð af hettum. Ágætt getur verið að fá kvensjúkdómalækni til að mæla hvaða stærð hentar þér til að öruggt sé að hún verndi sem best gegn ótímabærri þungun.

Ath. hettan veitir ekki vörn gegn kynsjúkdómum.

Notkun:

  • Hettan er brotin saman með því að ýta á kant hennar þar sem upphleyptir punktar liggja
  • Caya Diaphragm Gel er borið á fellingu sem myndast við samanbrotið (um 4 ml)
  • Smá sæðisdrepandi krem er borið á kant hettunnar
  • Hægt er að setja hettuna og gelið upp með fyrirvara en flestir setja hettuna upp rétt fyrir samfarir
  • Hettunni er haldið saman með tveimur fingrum og komið fyrir um leggöng líkt og tíðartappa eða tíðabikar. Ör í hettunni snýr í átt að líkama
  • Efri kanti hettunnar er komið fyrir í rýminu fyrir aftan legháls og fremri partur, þar sem flipinn er, liggur framfyrir legháls og er ýtt upp fyrir lífbein
  • Þreifað er á kúpta hluta hettunnar til að athuga staðsetningu hennar. Ef þú finnur fyrir leghálsinum í gegnum hettuna er hún rétt staðsett. Að koma við leghálsinn er ekki ósvipað og að koma við nefbroddinn. Ef leghálsinn finnst ekki í gegn skal fjarlægja hettuna og koma henni aftur fyrir
  • Hettan er höfð uppi í minnst 6 tíma eftir síðustu samfarir
  • Þegar hettan er fjarlægð er fingri komið fyrir í gripinu framan til og hún dregin út
  • Eftir notkun er hettan skoluð með vatni og sápu og látin þorna í opnu boxi.
  • Til að minnka áhrif umhverfis á hettuna skal ávallt geyma hana í geymsluboxinu sem fylgir
  • Mikilvægt er að hettan sé aldrei lengur en sólarhring í leggöngum hverju sinni
  • Hægt er að bæta á hettugelið ef þú vilt

Hettan endist í 2 ár. Inniheldur lækningastaðlað silíkon og nælon.