Tímapöntun í brjóstagjafaráðgjöf

Lokað fyrir bókanir

Brjóstagjafaráðgjöf án aðkomu Sjúkratrygginga Íslands. Bókið hér fyrir neðan í gegnum Noona appið.

Júlíana Magnúsdóttir hjúkrunarfræðingur og brjóstagjafaráðgjafi IBCLC

Hægt er að panta tíma á staðnum. Lucina er staðsett í Lífsgæðasetri St.Jó í Hafnarfirði, Suðurgötu 41, 2. hæð.

https://noona.is//lucina/book?iframe=true&darkModeDisabled=true&showCancelButton=true

Einnig er hægt að bóka tíma í gegnum fjarfundarbúnað ef viðkomandi er úti á landi. Best er að koma til mín en við reynum að vinna með öllum óháð því hvar þau eru staðsett. Vinsamlegast notið þennan link ef þið viljið videosamtal

https://go.karaconnect.com/request/1539/eid

Tíminn kostar 15000 krónur. Innifalið í því er klukkutími af brjóstagjafaráðgjöf, barnið er skoðað og ráðgjöfin mótuð eftir því hvað hentar foreldri og barni. Einnig færðu sendan tölvupóst með því plani og leiðbeiningum sem rætt var um í tímanum svo þú getir alltaf farið til baka og skoðað. Eftir tímann geturðu alltaf haft samband með spurningar og til að fá áframhaldandi leiðbeiningar. Ef þið þurfið fleiri en einn tíma er það skoðað eftir þann fyrsta.

Einnig er veitt ráðgjöf um annarskonar fæðugjöf, t.d. pelagjöf en einnig hvernig má byrja á að kynna börn fyrir fastri fæðu.